15september
i´m bored! nennir einhver að gera e-ð með mér í kvöld.. helst e-ð sem er tengt áfengisdrykkju og dansi
17júlí
Hey ladys!
Þá styttist í þetta, mor og far eru að rúlla héðan næsta sunnudag og þá er ég EIN heima í ÞRJÁR vikur!

Þ.a. ég var að pæla hvort við eigum ekki að gera e-ð mega þegar ég er EIN heima

Reyndar verður Kamil heima en jájá hann og kæró geta bara verið með hehe... En ok látið mig vita hvað og hvenær og við plönum e-ð. Svo eins og þið vitið þá er ég að vinna hver einasta helgi þ.a. við verðum að mixa e-ð kringum það
bæ í bili Ella
12júlí
Hola chicas!!!
Þá fer að styttast í að ég fari af landi brott til Mexíkó og USA í ca. 9 mánuði...Vegna þess hef ég stofnað blogg til að segja ykkur frá ævintýrum mínum. Ætli ég bloggi þá nokkuð hér enda þetta blogg hálfdautt, hver veit nema maður skelli samt bloggi hér inn til að lífga upp á það svona einstöku sinnum. Það væri nú samt tilvalið ef einhverjir tæku sig til og lífguðu þetta við og segðu mér frá ævintýrunum hérna á klakanum og hvað sé að frétta af Kúltúra og svona

Held ég muni nú sakna klakans soldið

en ætli ég verði ekki öpdeituð á msn, skype og gegnum e-mail

Annars er það djamm um á föstud. og ætli það verði ekki frekar öflugt enda fara að vera seinustu forvoð til að djamm almennilega að íslensku sið :)
Bloggið mitt er
www.martaimexico.bloggar.is og eins gott að þið verðið kommentaglöð og svo bý ég til myndasíðu í bráð, læt vita hvenær :)
Kv. Marta Mirjam
06júní
Hey beibis.. ég er hérna í smá klípu.. Þar sem MR er ekki áfangaskóli og ég er að læra fyrir læknaprófið nenniðið að segja mér hvaða námsefni er þetta þ.e. í samanburði í hvaða bekk við lærðum þetta í MR... eða hvaða kennslu efni er þetta.. :D
Þeir áfangar sem lagðir eru til grundvallar fyrir prófið eru eftirfarandi:
a) Eðlisfræði, EÐL 103, 203
b) Efnafræði, EFN 103, 203, 303, 313
c) Enska, ENS 103, 203, 303, 403
d) Félagsfræði, FÉL 103
e) Íslenska, ÍSL 102, 202, 212, 303, 403, 503
f) Náttúruvísindi, NÁT 103, 113, 123
g) Líffræði, LÍF 103, 203
h) Saga, SAG 103, 203
i) Stærðfræði, STÆ 103, 203, 303, 403, 503
j) Tölfræði, STÆ 313
k) Sálarfræði, SÁL 103
takk beibis :D kv. Ella
06maí
Hellúhellú...
hvað segiðið stelpur? Hvernig gengur prófalestur? ég var að pæla eigum við ekki að detta feitt í það allar saman eftir próf? Hmm er það ekki ógeðslega gott plan?
ég er allavega ógeðslega sátt með þetta plan 
og já haha þetta er ég! Ella :D
07apríl
Hæhæ,
Nennir einhver að sækja mig á Akureyri ? Mig vantar samt bara far á Sigló! Öll hjálp vel þegin!!
Klípu-Sunneva
22mars
Held að málið sé að monnta sig aðeins!!!!
Eftir 4 mánuði flýg ég til Mexíkó eins og flestir vita og verð í 6 mánuði líklega einhvers staðar í eða nálægt Mexíkó city....STUÐ!!!! Þið sem ekki vitið þá ætla ég að fara í sjálfboðaliðastarf, vinna með götubörnum eða e-d þannig, ekki komið á hreint hvað ég mun vinna við en ég er komin með "já" frá ICYE (samtökunum) úti 
.
Hitt kemur í ljós vonandi bráðlega
Áðan var ég samt að komast að því að eftir þessa 6 mánuði (eða fl. fer eftir því hvort ég framlengi - ólíklegt þó eftir þessar fréttir!) mun ég fara til Californiu í ca. 4 mánuði (ef ég verð bara í 6 mánuði í Mexíkó) því familían mín er að flytja þangað í haust, pabbi að fara í doktorsnám í 1-2 ár úti....jebbs Martan er að fara að flytja til L.A. (eða úthverfi L.A. sem heitir Claremont)
Eruði ekki að meta þetta???? SJÆSEN, ég er svo spennt!!! Þið hefðuð átt að vera með mér áðan þegar ég fékk að vita þetta, það var hresst!!!
Selfölgelig er ykkur velkomið að kíkja til L.A. og eflaust Mexíkó líka (þekki bara ekki hvernig fjölskyldan mín þar er en eflaust hress), djamma, liggja á ströndinn
i, kíkja í búðir og auðvitað fræga fólkið ;) Jafnvel kíkja á New Port beach ;) Pant vera Summer (vil ekki deyja!) + hún á svo sætan kæró
Nokkrar myndir:
Mexico city
Dúllur!!! Hjálpa kannski nokkrum svona 
Kíki svo kannski stundum á ströndina
...og skoða rústir!
Drekk Tequila og faðma klósett!
Fer í Mexíkana bolla vonandi með Sunnevu!
Svo er stutt til Kúbu, pæling að fara og læra salsa fyrir salsakvöld á Kúltúra!!!
L.A. verður stuð!
Hitti kannski einhverja fræga!

Fer í sleik við Seth Cohen á fallegu Newport beach!
Nýja ég með kæróinn minn 
Þetta er svo sannarlega mikið stuð ár framundan, en núna er það að sjálfsögðu skólinn nr. 1 enda farið að styttast í próf! Held að djammið fari að minnka enda MR-fabskvísur að byrja í prófum strax eftir páska! Nú er það bara skólinn svo maður fái hvítu húfuna á kollinn....ekki alveg að nenna því en ekkert sem heitir svo maður komist nú út! Útskrifast 19. maí og ykkur fabinu er að sjálfsögðu boðið í veislu (meira um það síðar). Þið sem ekki eruð í prófum þá megið svo endilega djamma með mér um kvöldið, ég verð að fá að djamma með hvítu húfuna, fá pínu athygli og ekki get ég farið ein á Kúltúra að sýna Sixto húfuna!
Vonandi eruð þið líka orðnar jafnspenntar fyrir sumrinu og ég!!!...það verður sko tekið á því enda hef ég 2 mánuði (kannski minna, enda ætla sumir e-d út í sumar) til að njóta Íslands (áhyggjulaus vegna skóla) með ykkur áður en ég fer út! Það verður vel nýtt og ég er meira að segja komin með sumarvinnu hér í bænum frá 8-16 (byrja strax 11. maí, þegar ég verð búin með próf liggaliggalái) svo engar áhyggjur af því að þið munið sakna mín af því ég verð í sveitinni...held það yrði samt frekar ég að sakna ykkar! Annars verður sumarið kannski pínu púl líka enda ætla ég líka að vinna í Body Shop svo ég geti nú keypt mér nóg í L.A....verða pínu rík
Komið nóg í bili...ein hérna að missa sig í spenningi! Held að við Malla ætlum að djamma um helgina (endilega sláist í hópinn) en annars verð ég að vinna alla helgina svo ef þið eigið leið hjá í Smáralind endilega kíkja við
Anna og Edda ætla annars að vera í útlandinu yfir helgina og vonandi skemmta þær sér bara alveg megasegavel
See ya....Marta Mirjam
sem er back með langar færslur
10mars
Jæja skvísur, erum við ekki allar spenntar fyrir afmælinu hennar Sunnevu, heimborgarafabinu í kvöld?!
Þetta verður stuð og fjör á Selfossi!! Ég er allavega mega spennt!!
kv. Ella
08mars
Tjékkitt
http://www.youtube.com/watch?v=u3ppoX4bVTQ
Edda
08mars
http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1257517
Þúst er hún bara algjörlega að missa vitið elsku kerlingin, ég held að Justin verði bara að fara að grípa inní til þess að bjarga henni. Ég meina hún ætlaði víst að hengja sig ...